top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Niðurtalningin er hafin! - Fréttabréf janúarmánaðar

  • Writer: Elín Hirst
    Elín Hirst
  • Feb 12
  • 3 min read

Nú styttist í Velsældarþingið 2026 sem fram fer í Hörpu í Reykjavík, dagana 16.-17. apríl nk.


Þema þingsins í ár er „Máttur velsældar: Endurskilgreining árangurs“. Þar koma saman leiðtogar úr stjórnmálum, atvinnulífi og fræðasamfélagi til að ræða hvernig móta megi efnahagskerfi sem starfa innan marka náttúrunnar og stuðla að aukinni velsæld kynslóða.


Við munum kynna fyrirlesara og helstu áherslur dagskrár í þessu og næstu fréttabréfum.

Áttu eftir að skrá þig á þingið? Tryggðu þér sæti í dag.


________________________________________________________________________________________________________


Nicola Sturgeon, fyrrum forsætisráðherra Skotlands
Nicola Sturgeon, fyrrum forsætisráðherra Skotlands

Nicola Sturgeon, fyrrum forsætisráðherra Skotlands, hefur staðfest komu sína á Velsældarþingið, 16.-17. apríl í Hörpu í Reykjavík.


Sturgeon var meðal stofnenda samstarfs ríkja um velsældarhagkerfi (Wellbeing Economy Governments partnership – WEGo) árið 2018. WEGo samstarfið er vettvangur ríkja og svæða sem vinna saman að því að miðla þekkingu og stefnumótun sem hægt er að nýta og aðlaga í þágu velsældarhagkerfa.


Unnið er áfram að mótun dagskrárinnar og verður nýjum fyrirlesurum bætt við á vefinn eftir því sem staðfestingar berast. Við munum einnig miðla fréttum í næstu fréttabréfum.


________________________________________________________________________________________________________


Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Velsældarþingsins
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Velsældarþingsins

GILDAMIÐUÐ FORYSTA Í BRENNIDEPLI


Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er verndari Velsældarþingsins og mun taka virkan þátt í þinginu í ár.


Halla Tómasdóttir er ötull talsmaður gildamiðaðrar forystu með áherslu á samkennd, sjálfbærni og jafnrétti kynjanna. Með reynslu sína sem leiðtogi í atvinnulífinu og fyrrverandi forstjóri The B Team hefur hún talað fyrir nýrri nálgun í forystu sem setur fólk og jörð í forgang fremur en skammtímahagnað.


Hún hvetur leiðtoga til að vinna að eigin innri styrk, skýra gildi sín og leiða í samræmi við sinn innri áttavita. Jafnframt leggur hún áherslu á mikilvægi öflugs samstarfs þvert á geira og kynslóðir, þar á meðal að skapa ungu fólki raunhæf tækifæri til að hafa áhrif.

________________________________________________________________________________________________________


Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, forseti Velsældarþingsins
Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, forseti Velsældarþingsins

REYKJAVÍK SEM LEIÐANDI ALÞJÓÐLEGUR VETTVANGUR VELSÆLDARHAGKERFISINS


Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, er forseti Velsældarþingsins.


„Við hlökkum til að taka á móti gestum víðs vegar að úr heiminum, þar á meðal stefnumótendum, stjórnmálafólki, fræðafólki, sérfræðingum og aðgerðarsinnum. Markmið okkar er að stuðla að umbreytingu alþjóðlega efnahagskerfisins þannig að það efli velsæld bæði fólks og jarðar,“ segir Dr. Dóra.


Hún leggur áherslu á nauðsyn þess að endurskilgreina árangur og framfarir með því að horfa út fyrir hefðbundna mælikvarða á borð við verga landsframleiðslu og taka jafnframt mið af félagslegum og umhverfislegum þáttum sem mælikvörðum á raunverulega velsæld. „Við vonum að Velsældarþingið á Íslandi þróist í framtíðinni í ‘Davos’ velsældarhagkerfisins,“ bætir hún við.

________________________________________________________________________________________________________


Prófessor Knut-Inge Klepp, vísindalegur verkefnastjóri JA PreventNCD
Prófessor Knut-Inge Klepp, vísindalegur verkefnastjóri JA PreventNCD

Velsældarþingið: ómissandi hluti af JA PreventNCD


Velsældarþingið er lykilviðburður innan JA PreventNCD og mikilvægur vettvangur til að efla umræðu um velsældarhagkerfi í framkvæmd. Prófessor Knut-Inge Klepp, vísindalegur verkefnastjóri JA PreventNCD, situr í skipulagsnefnd þingsins og tengir umræðurnar við víðtækara forvarnastarf sem fram fer víðs vegar um Evrópu.


JA PreventNCD sameinar 25 lönd og yfir 100 samstarfsaðila í því skyni að draga úr byrði krabbameina og annarra ósmitbærra sjúkdóma. Verkefnið er víðtækt að umfangi og tekur bæði til samfélagslegra og einstaklingsbundinna áhættuþátta, með skýra tengingu við jöfnuð í heilsu og sjálfbærni. Lögð er sérstök áhersla á að styðja lönd við að forgangsraða því sem skilar árangri, með aukinni samhæfingu, minni tvíverknaði og markvissari árangursmati þannig að forvarnir hafi meiri áhrif.


Innan þessa víðtæka verkefnis er einnig horft sérstaklega til þess hvernig stefnumótun þvert á geira mótar heilsu, þar á meðal með nálguninni Heilsa í allri stefnumótun og velsældarhagkerfi. Þess vegna skiptir þingið máli: það leiðir saman ákvarðanatökuaðila og framkvæmdaraðila utan heilbrigðisgeirans til að ræða hvernig við skilgreinum framfarir, mótum stefnu og sköpum skilyrði fyrir heilbrigðara lífi kynslóða.


________________________________________________________________________________________________________


Fylgstu með


Á vef Velsældarþingsins má finna nýjustu upplýsingar um dagskrá, staðfesta fyrirlesara, upplýsingar um viðburðarstað og önnur hagnýt atriði. Nýju efni verður bætt við eftir því sem nær dregur apríl og því er gott að líta reglulega inn á vefinn.


Fylgdu okkur hér á helstu samfélagsmiðlum: LinkedIn | Facebook | YouTube | Website

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page