top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Fréttabréf febrúarmánaðar

  • Writer: Elín Hirst
    Elín Hirst
  • Mar 2
  • 3 min read

Jesper Brodin meðal fyrirlesara á Velsældarþinginu 2026


Jesper Brodin, fyrrum forstjóri (CEO), Ingka Group I IKEA; Formaður, The B Team
Jesper Brodin, fyrrum forstjóri (CEO), Ingka Group I IKEA; Formaður, The B Team

Það gleður okkur að tilkynna að Jesper Brodin mun taka þátt í Velsældarþinginu á Íslandi 16–17 apríl.


Brodin er virtur leiðtogi í viðskiptum og talsmaður sjálfbærni, hann starfar nú sem formaður The B Team og er einnig meðlimur í stjórnarnefnd Ingka Group | IKEA. Frá 2017 til 2025 leiddi hann Ingka Group sem forstjóri, og leiðbeindi stofnuninni í gegnum miklar umbreytingar.


Brodin er einnig varaformaður stjórnar Sameinuðu þjóðanna Global Compact (UN Global Compact Board) og meðlimur í alþjóðlegri stjórnarnefnd World Resources Institute (WRI). Í gegnum þessi embætti berst hann fyrir ábyrgum viðskiptum og samstarfsverkefnum í loftslagsaðgerðum á alþjóðavísu.


Brodin gekk til liðs við The B Team með það að markmiði að stuðla að raunverulegum breytingum með því að takast á við loftslagsáskoranir með lausnum sem byggja á samstarfi og hafa víðtæk áhrif. Skilaboð hans eru einföld en jafnframt öflug: „Tíminn til að ræða málin er liðinn. Tíminn til að bæta um betur er núna“.


Á Velsældarþinginu mun Brodin taka þátt í sérstöku samtali við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, um mikilvægi forystu sem byggir á skýrum tilgangi og traustum gildum í hratt breytilegu samfélagi. Þau munu velta fyrir sér þeim úrlausnarefnum sem leiðtogar standa frammi fyrir í dag, allt frá áhrifum gervigreindar og vaxandi upplýsingaóreiðu til þess að endurbyggja traust, hraða loftslagsaðgerðum og efla samfélög sem byggja á virkri þátttöku og jöfnum tækifærum. Með hliðsjón af eigin reynslu hjá IKEA, allt frá því að hefja störf sem aðstoðarmaður Ingvars Kamprads til þess að gegna starfi forstjóra, mun Brodin deila innsýn í forystu sem byggir á hugrekki, samkennd og samstarfi. Samtalið mun veita opinskáa og heiðarlega sýn á hvernig leiðtogar geta tekist á við áskoranir samtímans og jafnframt unnið að því að móta betra og mannúðlegra hagkerfi.


________________________________________________________________________________________________________


Handan vergrar landsframleiðsla (GDP): Að endurhugsa hvernig við mælum árangur


António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (UN Secretary-General)
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (UN Secretary-General)

Eitt af viðfangsefnum Velsældarþingsins verður að undirstrika brýna þörf þess að horfa út fyrir verga landsframleiðslu (GDP - Gross Domestic Product) sem ríkjandi mælikvarða á efnahagslegan árangur.


Þessi umræða fer vaxandi á alþjóðavettvangi.  Í viðtali við The Guardian 9. febrúar benti António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á að ef við reiðum okkur einungis á verga landsframleiðslu sem mælikvarða sé heimurinn ekki nægilega vel í stakk búinn að takast á við fjölbreyttar áskoranir samtímans. Hann lagði áherslu á að núverandi efnahagskerfi nái ekki að endurspegla raunverulegt verðmæti náttúrunnar og velsældar fólks.


„Við verðum að meta umhverfið að raunvirði og horfa út fyrir verga landsframleiðslu sem mælikvarða á framfarir og velsæld mannkyns,“ sagði Guterres. „Við skulum ekki gleyma því að þegar við eyðum skógum hækkar GDP. Þegar við ofveiðum gerist hið sama.“


Í áratugi hefur hagvöxtur, fyrst og fremst mældur með vergri landsframleiðslu, verið talinn meginmarkmið efnahagsstefnu. Þessi þrönga áhersla dugar þó skammt þegar kemur að umhverfismengun, félagslegum ójöfnuði og langtímahagsmunum samfélaga.


Til að bregðast við þessu hefur Guterres kallað saman hóp leiðandi hagfræðinga til að þróa nýjan ramma um mælingar sem endurspeglar betur raunverulegar framfarir. Í hópnum eru meðal annars Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz, indverski hagfræðingurinn Kaushik Basu og sérfræðingurinn í jafnréttismálum Nora Lustig. Markmið þeirra er að samþætta mælikvarða á velsæld fólks, sjálfbærni og jöfnuð í það hvernig við metum efnahagslegan árangur.


Á Velsældarþinginu munu þátttakendur ræða hvernig slíkir nýir mælikvarðar geta haft áhrif á stefnumótun og stutt við sjálfbærari og réttlátari efnahagsþróun sem mælir það sem raunverulega skiptir máli.

________________________________________________________________________________________________________


Komdu í sögugöngu um Reykjavík með Stefáni Pálssyni sagnfræðingi


Vesturbæjarlaug
Vesturbæjarlaug

Taktu þátt í sögugöngu leidda af sagnfræðingnum Stefáni Pálssyni á einum af hliðarviðburðum Velsældarþingsins kl 18:00, fimmtudaginn 16. apríl. Sögugangan, sem mun taka um það bil 40 mínútur, hefst við Hörpu og endar í  Vesturbæjarlaug.


Á leiðinni fá gestir að kynnast sögu alræmds fangelsis sem síðar hýsti skrifstofu forsætisráðherra Íslands, fræðast um metnaðarfullt hótelverkefni sem stórbrotinn glímumaður og sýningarstjóri hrinti af stað á fjórða áratug síðustu aldar, skoða þéttsetinn gamlan kirkjugarð og komast að því hvernig fámennur kaþólskur söfnuður reisti stærstu kirkju landsins.


Gestir Velsældarþingsins geta skráð sig í sögugönguna um leið og þeir skrá sig á Velsældarþingið.

________________________________________________________________________________________________________


Skráning er hafin!


Planning for the Wellbeing Economy Forum is well underway, and we look forward to welcoming you to Harpa this April. If you have not registered yet, you can do so by clicking the link below.


_______________________________________________________________________________________________________


Fylgstu með


Á vef Velsældarþingsins má finna nýjustu upplýsingar um dagskrá, staðfesta fyrirlesara, upplýsingar um viðburðarstað og önnur hagnýt atriði. Nýju efni verður bætt við eftir því sem nær dregur apríl og því er gott að líta reglulega inn á vefinn okkar.



Fylgdu okkur hér á helstu samfélagsmiðlum: LinkedIn | Facebook | YouTube | Website

________________________________________________________________________________________________________

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page