Þriðja Velsældarþingið í Reykjavík 8.–9. maí 2025
- Elín Hirst

- Mar 12, 2025
- 2 min read
Kveðja frá forseta Íslands

Kæru vinir,
Sem verndari árlegs Velsældarþings býð ég ykkur hjartanlega velkomin á þennan mikilvæga viðburð, sem fram fer í Hörpu í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025.
Síðan árið 2018 hafa íslensk stjórnvöld unnið stolt með samherjaþjóðum – Finnlandi, Kanada, Skotlandi, Nýja-Sjálandi og Wales – í gegnum samstarfsverkefnið Wellbeing Economy Governments (WEGo). Þetta samstarf endurspeglar sameiginlega skuldbindingu okkar um að skapa samfélög sem setja velsæld fólks og heilsu jarðar í forgang.
Velsældarhagkerfi leggur áherslu á meira en hina hefðbundnu efnahagslegu mælingar á árangri. Í velsældarhagkerfi er tekið tillit til fjölbreyttra þátta eins og húsnæðisöryggis, andlegrar og líkamlegrar heilsu, umhverfislegrar sjálfbærni, lífsánægju, lýðræðislegrar þátttöku, öryggis í samfélaginu og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Við höfum einstakt tækifæri til að ná raunverulegum árangri á þessum sviðum í sameiningu.
Embætti landlæknis skipuleggur þingið í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda samstarfsaðila, þar á meðal forsætisráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, Reykjavíkurborg, WEGo, OECD, WHO-Evrópu, UNESCO, Wellbeing Economy Alliance (WEAll), Rómarklúbbinn (e. Club of Rome), Earth for All, EuroHealthNet, Samband íslenskra sveitarfélaga og Festu – miðstöð um sjálfbærni.
Þingið er hluti af alþjóðaverkefninu Joint Action Prevent Non-Communicable Diseases (JA PreventNCD), sem styrkt er af Evrópusambandinu. Sem lykilþáttur í JA PreventNCD styður Velsældarþingið við mótun stefnu til að draga úr byrði vegna krabbameina og annarra ósmitbærra sjúkdóma með því að takast á við helstu helstu áhrifaþætti heilsu.
Sérstök sýn og reynsla fólks úr ólíkum geirum stjórnmála, atvinnulífs og fræða verða dýrmæt þegar við ræðum um stefnu og aðferðir sem raunverulega geta bætt velsæld einstaklinga og samfélaga. Saman getum við rutt brautina að bjartari, sjálfbærari og réttlátari framtíð fyrir alla.
Ég hlakka til að sjá ykkur!
Með kærri kveðju,
Halla Tómasdóttir
Forseti Íslands


_edited.png)