top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

UNESCO einn af meðskipuleggjendum Velsældarþingsins

  • Writer: Lísbet Sigurðardóttir
    Lísbet Sigurðardóttir
  • May 7, 2025
  • 1 min read

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, verður einn af meðskipuleggjendum Velsældarþings 2025 sem fram fer á Íslandi dagana 8. - 9. maí, 2025. UNESCO er leiðandi aðili á heimsvísu í að efla frið, menningarlegan skilning og sjálfbæra þróun. Þátttaka UNESCO á Velsældarþinginu mun styrkja verulega umræður um aðgengilegra og réttlátara hagkerfi sem byggir á mælikvörðum um velsæld; þ.e. félagslegum og umhverfislegum þáttum auk hinna efnhagslegu.



Gustavo Merino, sviðsstjóri félagsmála hjá UNESCO, stýrir þriðja dagskrárlið Velsældarþingsins sem ber yfirskriftina „Velsæld er snjöll hagfræði“ frá kl. 11:00 til 12:00 í Silfurbergi í Hörpu,  þann 8. maí. Gustavo hefur mikla reynslu af samfélagsmálum og hefur gegnt lykilhlutverki í að móta stefnu UNESCO til að efla  sameiginlega velsæld, alþjóðlegt samstarf og sjálfbæra þróun (https://www.unesco.org/en).



Gustavo Merino, sviðsstjóri félagsmála hjá UNESCO
Gustavo Merino, sviðsstjóri félagsmála hjá UNESCO

Eleonora Lamm, sérfræðingur í lífsiðfræði og lögum, er lykilmaður í ráðgjafarnefnd (Advisory Board) Velsældarþings 2025. Elenora er með rúmlega 18 ára reynslu af störfum sem snúa að mannréttindum, jafnrétti kynjanna, vísindum og siðfræði.  Hún er með doktorsgráðu í lífsiðfræði og lögfræði frá Háskólanum í Barcelona og hefur verið ráðgjafi í alþjóðlegri stefnumótun innan samtaka á borð við UNESCO, UN Women, Alþjóðavinnumálastofnunina (ILO) og OHCHR.


Eleonora Lamm
Eleonora Lamm

Þátttaka UNESCO í Velsældarþinginu 2025 mun færa viðburðinum dýpri innsýn í hvernig hægt er að endurskilgreina lykilviðmið hagkerfisins til að auka velsæld og skapa réttlátari framtíð fyrir alla.

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page