top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Tími til að endur­hugsa hag­vöxt!

  • Writer: Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
    Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
  • Oct 15, 2025
  • 3 min read

Frá vinstri: Dóra Guðrún Guðmundsdóttir – sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis og stofnandi Velsældarþings/Wellbeing Economy Forum; Soffía S. Sigurgeirsdóttir – CEO, Langbrók; Elva Rakel Jónsdóttir – CEO, Festa


Í áratugi höfum við metið árangur þjóða út frá hagvexti, mældum í vergri þjóðarframleiðslu (VÞF eða GDP). En við höfum sjaldan spurt: Hvað kostar þessi vöxtur? Hvernig hefur hann áhrif á heilsu og velsæld fólks, félagslegt réttlæti og auðlindir náttúrunnar sem líf okkar byggir á? Margt af því sem eykur hagvöxt hefur neikvæð áhrif á þessa þætti, eins og byggingarframkvæmdir sem stuðla að losun gróðurhúsalofttegunda, þungaflutningar sem valda loftmengun eða neysla á einnota vörum.


Samkvæmt nýjustu úttekt World Economic Forum Global Risks Report (2025), hefur ofnýting auðlinda og hnignun vistkerfa bein áhrif á framleiðni, hagvöxt og efnahagslegan stöðugleika. Aukin fjárhagsleg útgjöld þjóða og atvinnulífs vegna loftslagsbreytinga er staðreynd og til viðbótar er að aukast hratt sá kostnaður sem tengist skertri framleiðslugetu vinnuafls vegna hnignandi heilsu og vellíðan starfsfólks. Samfélög þurfa að horfast í augu við auknar lýðheilsu áskoranir líkt og aukið þunglyndi, meiri streitu, einsemd, félagslega einangrun og kulnun. Áætlað er að um 330 milljónir manna glími nú við þunglyndi á heimsvísu og telur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) að þunglyndi sé ein helsta orsök örorku á heimsvísu og svo er einnig hér á landi. Samkvæmt OECD nemur heildarkostnaður geðraskana að jafnaði um 4,9% af landsframleiðslu í OECD-ríkjum, þar af um helmingur vegna tapaðrar framleiðni og minni afkasta á vinnumarkaði. Þessi þróun er einnig að eiga sér stað hér á landi.


Samkvæmt nýútgefnum Talnabrunni embættis landlæknis metur einn þriðji fullorðinna geðheilsu sína slæma, tæplega þriðjungur finnur fyrir mikilli streitu, 11% upplifa oft einmanaleika, aðeins helmingur telur sig mjög hamingjusöm og einungis 17% upplifa mikla velsæld. Við hljótum að geta gert betur.


Þessi samtenging, á milli hámörkunar hagvaxtar og hnignunar velsældar, kallar á nýja nálgun. Við þurfum að spyrja; Hvenær hættir meiri vöxtur að skila raunverulegum ávinningi fyrir samfélagið og byrjar þess í stað að grafa undan heilsu, velsæld, félagstengslum og sjálfbærni?


Ný sýn á árangur


Velsældarhagkerfi býður upp á nýja nálgun. Það leggur áherslu á að mæla og efla raunveruleg lífsgæði fólks og náttúru, ekki aðeins hagvöxt. Markmiðið er að tryggja heilsu, jöfnuð, menntun, sjálfbærni og samfélagslegt öryggi og að ákvarðanir, hvort sem er í ríkisfjármálum eða rekstri fyrirtækja, miði að því að bæta lífsgæði í stað þess að hámarka einungis framleiðni.


Ísland hefur þegar stigið mikilvægt skref í þessa átt með því að innleiða 40 velsældarvísa sem byggja á félagslegum, efnahagslegum og umhverfislegum þáttum. Þessir mælikvarðar tengjast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og nýju regluverki ESB um sjálfbærni (ESRS), og skapa þannig sameiginlegan grunn til að meta árangur út frá heildstæðri sýn.


Sameiginleg ábyrgð stjórnvalda og atvinnulífs


Velsæld er ekki aðeins markmið stjórnvalda, hún er sameiginleg ábyrgð atvinnulífsins og okkar allra. Fyrirtæki og stofnanir hafa tækifæri til að vera virkir þátttakendur í umbreytingunni með því að samþætta velsældar viðmið við stefnumótun, mannauðsstjórnun og og ábyrgan rekstur.


Þau fyrirtæki sem forgangsraða í þágu velsældar eru betur í stakk búin til að takast á við áföll og breytingar. Áhersla á vellíðan og aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs getur auk þess stuðlað að meiri starfsánægju og þátttöku starfsfólks og haft góð áhrif á nýsköpun og framleiðni Það sem skiptir máli er ekki aðeins að vaxa, heldur að huga að því hvernig við vöxum og fyrir hverja. Ef við breytum ekki hagkerfinu, helst þróunin óbreytt. En ef við breytum því í þágu velsældar, þá breytist margt til hins betra.


Grein eftir

Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur – sviðsstjóra lýðheilsu hjá embætti landlæknis og stofnanda Velsældarþings/Wellbeing Economy Forum

Soffíu S. Sigurgeirsdóttur – CEO, Langbrók

Elvu Rakel Jónsdóttur – CEO, Festa


Þessi grein birtist á Vísir.is miðvikudaginn 15. október 2025: https://www.visir.is/g/20252789249d/timi-til-ad-endurhugsa-hagvoxt-

 




 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page