top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Meistaranám í velsældarfræðum á Íslandi hlýtur rausnarlegan styrk

Writer: Elín Hirst
Elín Hirst
Dec 17, 2024
1 min read

Nýtt meistaranám í velsældarfræðum er eitt af 19 verkefnum sem hljóta styrk úr sjóðnum Samstarf háskóla á Íslandi, samtals að upphæð 60.396.000 ISK (420.000 evrur). Námið er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, embætti landlæknis og Surrey-háskóla í Englandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum háskóla-, iðnaðar-  og nýsköpunarráðherra, tilkynnti úthlutun styrksins.


Velsældarhagkerfi fer lengra en hin hefðbundna efnahagslega nálgun sem einblínir eingöngu á efnahagslega mælikvarða við mat á árangri. Í staðinn mælir það velmegun og lífsgæði í gegnum mælikvarða sem meta meðal annars félagslega- og umhverfislega þætti auk hinna efnahagslegu.


„Nýja meistaranámið í velsældarfræðum er frábært tækifæri til að þjálfa næstu kynslóð leiðtoga í opinbera geiranum, einkageiranum og þriðja geiranum. Við þurfum nýtt hagkerfi sem leggur áherslu á vellíðan fólks og vistkerfisins á sjálfbæran hátt. Til að ná þessu markmiði þurfum við nýja færni og nýja þekkingu. Ísland er leiðandi í heiminum varðandi þessa umbreytingu með sinni áherslu á velsæld.“ segir Lorenzo Fioramonti, prófessor við Surrey-háskóla og fyrrverandi menntamálaráðherra á Ítalíu.

Á meðfylgjandi mynd, frá vinstri, Brynja Björk Magnúsdóttir, deildarforseti sálfræðideildar við Háskólann í Reykjavík, Elín Hirst, verkefnastjóri velsældarhagkerfis hjá embætti landlæknis, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum háskóla-, iðnaðar-  og nýsköpunarráðherra, Stefán Hrafn Jónsson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Sigurður Kristinsson, deildarforseti Félagsvísinda við Háskólann á Akureyri. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, og frumkvöðull verkefnisins, er ekki á myndinni. 

 

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page