top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Löndin læra hvert af öðru um velsæld

  • Writer: Elín Hirst
    Elín Hirst
  • May 23, 2025
  • 2 min read

— Innsýn frá Gary Gillespie, aðalhagfræðingi skosku ríkisstjórnarinnar


Í viðtali við, Morgunblaðið, sagði Gary Gillespie að löndin sem taka þátt í Velsældarþinginu hafi hvert og eitt sín áherslusvið og ólík verkefni til að takast á við.


Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar
Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar

Hann seg­ir aðspurður að vel­sæld­ar­mál séu víðfeðmt svið. „Ein af áskor­un­um er að vera skýr­ari í skil­grein­ing­um. Við í Skotlandi höf­um verið að horfa á bar­áttu gegn fá­tækt, græna hag­kerfið, lofts­lags­mál og annað í tengsl­um við efna­hag­inn. Wales hef­ur lagt áherslu á kyn­slóðir framtíðar­inn­ar. Vel­ferð og heilsa eru áber­andi mál­efni hjá Íslandi, Kan­ada og Finn­landi. Þannig að for­gangs­mál­in eru aðeins ólík eft­ir lönd­um í þessu sam­starfi,“ seg­ir Gil­lespie, sem hef­ur látið sig vel­sæld­ar­hag­fræði varða sl. átta ár. „Vel­sæld­ar­mál þarf að skoða í sam­hengi við jafn­rétti, lofts­lags­mál, nátt­úr­una og líf­ræn­an fjöl­breyti­leika. Svo þarf að líta á hlut­verk hag­fræðinn­ar í öllu sam­an.“


Víðsýni er lykilatriði í málefnum velsældar


Gary Gillespie, sem hefur sinnt málefnum velsældarhagkerfisins í átta ár, segir að áherslur ráðist af þeim löndum sem taka þátt í samstarfinu. Málefni velsældar verði að skoða í samhengi við jöfnuð, loftslagsmál, náttúru og líffræðilegan fjölbreytileika. Því verði einnig að huga að hlutverki hagfræðinnar í þessu öllu.

 

Á Velsældarþinginu (e. Wellbeing Economy Forum) sem haldið var í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík, 8.–9. maí 2025, komu fulltrúar margra landa saman til að ræða málin, deila sjónarmiðum og þekkingu og læra hvert af öðru.


Þegar Gary var spurður hvort breytingar á alþjóðavettvangi síðustu mánuði, vegna ákvarðana Bandaríkjastjórnar og tollastefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, muni hafa áhrif á umræður á Velsældarþinginu 2025, svaraði hann játandi og benti á að veruleg tengsl væru milli landanna og að breytingar á reglum í alþjóðaviðskiptum snertu alla.


Getur Skotland lært af Íslandi?


Þegar Gary var spurður hvort Skotland gæti lært eitthvað af Íslandi varðandi velsældarhagkerfið, sagði hann að Skotland gæti meðal annars lært af Íslendingum í áherslum þeirra á jafnrétti. „Á Velsældarþinginu árið 2024 hittum við fulltrúa frá ýmsum geirum eins og ferðaþjónustu, nýtingu jarðvarma og kolefnisbindingar. Að okkar mati býr Ísland yfir kunnáttu um hvað þarf til að takast á við náttúruna, eins og jarðskjálftarnir á Reykjanesi undanfarin ár. Skotland og Ísland hafa bæði áhuga á grænni orku, sjálfbærri ferðaþjónustu og auðlindastjórnun. Það er margt að læra af Íslandi,“ segir Gary að lokum.


 

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page