Heilbrigðari Evrópa: Nálgun velsældarhagkerfisins sem hluti af JA PreventNCD
- Lísbet Sigurðardóttir

- Apr 15, 2025
- 2 min read
Evrópa stendur frammi fyrir brýnum lýðheilsuáskorunum vegna ört vaxandi tíðni ósmitbærra sjúkdóma, eins og krabbameina, sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma. Meira en 75% einstaklinga eiga á hættu að þróa með sér slíka sjúkdóma. Til að bregðast við þessum vanda var samstarfsverkefnið Joint Action Prevent Non-Communicable Diseases (JA PreventNCD) sett á laggirnar árið 2024. Verkefnið er samfjármagnað af Evrópusambandinu og sameinar 25 Evrópulönd. Markmiðið er að draga úr byrði þessara sjúkdóma með því að vinna að rótum vandans: ójöfnuði í heilbrigðismálum, umhverfisáhrifum og félagslegum áhrifaþáttum heilbrigðis.
Einn þáttur í JA PreventNCD er nálgun velsældarhagkerfisins, sem hvetur til umskipta frá hinum hefðbundnu, hagnaðadrifnu efnahagslíkönum yfir í kerfi sem setja heilsu fólks, sjálfbærni umhverfisins, jöfnuð og grunnþarfir samfélaga í forgang.

Hvernig styður Velsældarþingið við markmið JA PreventNCD?
Einn liður í JA PreventNCD er Velsældarþingið, sem haldið hefur verið árlega á Íslandi frá árinu 2023. Þingið er alþjóðlegur vettvangur þar sem saman kemur stjórnmálafólk, stefnumótendur, atvinnulífsleiðtogar, fræðafólk og annað fagfólk og áhugafólk um velsæld til að efla samtal, samstarf og umbreytingar. Þingið styður við markmið JA PreventNCD með því að skapa rými til að ræða og skoða hvernig stefnumótun sem byggir á velsæld geti brugðist við stóru áskorununum eins og fjölgun ósmitbærra sjúkdóma, loftslagsbreytingum og auknum ójöfnuði.
Þingið hvetur til þverfaglegs samstarfs og veitir stefnumótendum leiðsögn um breytingar, þannig að velsæld verði höfð að leiðarljósi við alla stefnumótun. Þingið gegnir mikilvægu hlutverki í miðlun á góðum lausnum og hvetur til kerfisbreytinga sem bæta velsæld og draga úr ósmitbærum sjúkdómum um Evrópu og víðar. Þessi nálgun er í samræmi við markmið verkefnisins um að draga úr ósmitbærum sjúkdómum og stuðla að sjálfbærri velsæld fyrir bæði fólk og jörð.

Vertu með okkur í Reykjavík!
Þriðja árið í röð verður Velsældarþingið, sem skipulagt er af embætti landlæknis, haldið dagana 8. og 9. maí 2025 í Hörpu í Reykjavík. Á þinginu 2024 flutti Linda Granlund erindi þar sem hún ræddi hvernig velsældarhagkerfið styður við markmið JA PreventNCD. Í ár fögnum við komu Knut-Inge Klepp, sem stýrir vísindalegum hluta JA PreventNCD verkefnisins, og tekur þátt í dagskrárliðnum „Hvernig getur velsældarhagkerfi stutt við lýðheilsu?“ þann 8. maí kl. 15:00–16:30.
Við hvetjum öll sem láta sig þetta málefni varða, til að mæta á þetta mikilvæga þing.
Nánari upplýsingar um dagskrá, fyrirlesara og hagnýtar upplýsingar má finna á heimasíðu þingsins:🌐 wellbeingeconomyforum.com
Heimildir:🔗 https://preventncd.eu/about/🔗 https://island.is/en/o/directorate-of-health/news/historic-initiative-to-combat-non-communicable-diseases






_edited.png)