top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Fölblái punkturinn og velsældarhagkerfið

  • Writer: Elín Hirst
    Elín Hirst
  • Apr 28, 2025
  • 2 min read

Eftir Elínu Hirst


Carl Sagan, hinn frægi stjörnufræðingur og vísindablaðamaður (mynd til vinstri).

Fölblái punkturinn, líkt og Carl Sagan kallaði jörðina, sást fyrst í um 6 milljarða kílómetra fjarlægð árið 1990 (mynd til hægri).


„Teng­ingin milli dags jarðar og vel­sæld­ar­hag­kerf­is á sér ræt­ur í sam­eig­in­legri fram­tíð­ar­sýn; að setja heilsu og fram­tíð jarð­ar og fólks­ins sem á henni býr í forgang,“ skrif­ar El­ín Hirst í til­efni dags jarð­ar sem var 22. apríl og Vel­sæld­ar­þings í Hörpu sem verð­ur hald­ið 8. - 9. maí nk.


Jörðin okkar er einstakur staður þar sem líf dafnar og hefur enginn jafnoki fundist.  Árið 1990 tók Voyager-1 geimfarið ljósmynd af jörðinni í 6 milljarða kílómetra fjarlægð. Aldrei fyrr höfðu menn séð jörðina úr slíkri órafjarlægð.


Bandaríski stjörnufræðingurinn Carl Sagan kallaði myndina Fölbláa punktinn og túlkaði hana á þennan hátt: „Frá þessu fjarlæga sjónarhorni vekur jörðin kannski ekki neinn sérstakan áhuga. En fyrir okkur er þetta öðruvísi. Þetta er heimili okkar. Þetta erum við. Á jörðinni búa allir sem þú elskar, allir sem þú þekkir, allir sem þú hefur nokkurn tíma heyrt um… , sérhvert ástfangið par, sérhver móðir og faðir, …sérhver öðlingur, sérhver spilltur stjórnmálamaður… samanlögð gleði okkar og þjáning; allt er þetta á þessum litla fölbláa punkti í sólkerfi okkar.“

Carl Sagan sagði að ef til vill væri engin betri sönnun á heimsku og yfirlæti mannfólksins en þessi fjarlæga mynd af hinum pínulitlu heimkynnum okkar. Myndin undirstrikaði þá skyldu mannanna að umgangast hvert annað betur, og varðveita og hlúa að fölbláa punktinum, eina heimilinu sem við höfum nokkurn tíma þekkt.


Þriðja árlega Velsældarþingið, verður haldið í Hörpu 8. - 9. maí næstkomandi.  Þingið er íslenskt frumkvæði og leitt af Dr. Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra lýðheilsu hjá embætti landlæknis. Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er verndari þingsins. Tengingin milli dags jarðar og velsældarhagkerfis á sér rætur í sameiginlegri framtíðarsýn; að setja heilsu og framtíð jarðar og fólksins sem á henni býr í forgang.


Velsældarhagkerfið er frábrugðið hinni hefðbundu nálgun á hagkerfið út frá efnahagslegum mælikvörðum eingöngu.  Þess í stað eru vöxtur, lífsgæði og framfarir metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum mælikvörðum ásamt hinum efnahagslegu.


Á Velsældarþinginu í Hörpu verða fulltrúar leiðandi alþjóðastofnana, stjórnmálamenn og sérfræðingar um þróun velsældarhagkerfis. Embætti landlæknis skipuleggur þingið í samstarfi við forsætisráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, Wellbeing Economy Governments (WEGo), OECD, UNESCO, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO-Europe, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Festu-miðstöð um sjálfbærni, Rómarklúbbinn (e. Club of Rome), Earth4all og Wellbeing Economy Alliance (WEAll).  


Þess grein var upphaflega birt í heimasíðu Heimildarinnar: Fölblái punkturinn - Heimildin

 

Elín Hirst er fyrrverandi alþingismaður, fréttastjóri á RÚV, Stöð 2 og Bylgjunni, kvikmyndagerðarkona og rithöfundur. Elín starfar sem verkefnastjóri Velsældarþings hjá embætti landlæknis.





 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page