Fréttabréf marsmánaðar
- Laufey Fríða Guðmundsdóttir

- Mar 30
- 4 min read

Tveir forsetar ræða um velsæld

Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, heimsækir forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur 15. apríl 2026 í tengslum við árlegt Velsældarþing (Wellbeing Economy Forum) sem fram fer í Reykjavík. Forsetarnir hittast á tvíhliða fundi fyrir hádegið og snæða síðan hádegisverð með forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur.
Síðdegis verður opinn viðburður í Veröld — húsi Vigdísar, þar sem forsetarnir taka þátt í samtali undir yfirskriftinni „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi” („The Courage to Care: Leadership in a Changing World“). Forseti Íslands, sem er verndari Velsældarþingsins, hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi þess að efla samtal um nýjar leiðir og viðmið í efnahagsmálum. Heimsókn forseta Slóveníu til Íslands undirstrikar mikilvægi alþjóðlegs samtals og samvinnu um þróun efnahagskerfa þar sem velsæld fólks og náttúru er höfð að leiðarljósi.
Táknrænt er að kvenleiðtogarnir hittist í Veröld — húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrsta konan sem var kosin forseti í lýðræðislegri kosningu í heiminum árið 1980. Auk þess er 15. apríl afmælisdagur Vigdísar.
________________________________________________________________________________________________________
Reykjavík í brennidepli í vaxandi alþjóðlegri umræðu um mælikvarða umfram verga landsframleiðslu
Þegar Velsældarþingið 2026 nálgast vex alþjóðleg umræða um hvernig mæla eigi árangur umfram verga landsframleiðslu. Ný vinna á vegum Sameinuðu þjóðanna um mælikvarða handan vergrar landsframleiðslu, ákall á hæsta stigi um auknar aðgerðir gegn ójöfnuði og vaxandi umræða um fátækt í samhengi við hagvöxt skýra hvers vegna Velsældarþingið í ár er sérstaklega tímabært.
________________________________________________________________________________________________________
Hagfræði fyrir fólk og jörðina - Mælikvarðar umfram verga landsframleiðslu með Rutger Hoekstra

Við hlökkum til að bjóða Rutger Hoekstra velkominn sem fyrirlesara á Velsældarþinginu í Hörpu í Reykjavík þann 16. apríl.
Rutger Hoekstra er dósent við Umhverfisvísindastofnun Leiden-háskóla og leiðandi sérfræðingur á sviði mælikvarða handan vergrar landsframleiðslu, með áherslu á velsæld, inngildingu og sjálfbærni (WISE). Hann er jafnframt höfundur bókarinnar Replacing GDP by 2030, sem kom út hjá Cambridge University Press árið 2019.
Rutger hefur gegnt mikilvægu hlutverki á alþjóðavettvangi við þróun nýrra leiða til að mæla árangur, meðal annars sem meðformaður starfshóps Sameinuðu þjóðanna, Efnahagsnefndar Evrópu (UNECE), OECD og Eurostat um mælingar á sjálfbærri þróun. Hann stýrir nú WISE Horizons verkefninu og tekur þátt í fjölda alþjóðlegra verkefna, þar á meðal sérfræðingahópi Sameinuðu þjóðanna um mælingar á velsæld. Rutger hefur starfað með fjölmörgum alþjóðastofnunum, þar á meðal Sameinuðu þjóðunum, Alþjóðabankanum, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, OECD, Seðlabanka Evrópu, KPMG og Hagstofu Hollands.
Við hlökkum til að taka á móti Rutger á Velsældarþinginu í ár.
→ Sjá alla fyrirlesara
________________________________________________________________________________________________________
Byrjaðu daginn á jóga með Lenu Brodin

Skráðir þátttakendur á Velsældarþinginu fá tækifæri til þess að hefja báða daga þingsins með róadi og endurnærandi jógatíma undir leiðsögn Lenu Brodin en Lena er reyndur og virtur jógakennari sem leggur áherslu á samspil líkama, hjarta og hugar.
Lena Brodin er löggiltur jógakennari með yfir 15 ára reynslu af kennslu. Hún stundar nú tveggja ára nám í kennslu hugleiðslu hjá Tara Brach og Jack Kornfield. Djúpur áhugi hennar á tengslum líkama, hjarta og hugar hefur einnig leitt hana inn á vísindalega og meðferðartengda braut. Hún er með BA gráðu í sálfræði, hefur menntað sig í HAM og ACT meðferð og lagt stund á ítarlegt nám í búddískri sálfræði.
Lena lýsir jóga sem heiðarlegri iðkun þar sem maður mætir sjálfum sér af mildi, iðkun sem getur orðið leið til að lifa í meiri sátt við sjálfan sig, aðra og jörðina. Tímar hennar einkennast af mjúku og leiðandi flæði sem styrkir bæði líkama og sál, á sama tíma og rými er fyrir fjölbreytileika, einstaklingsmiðaðar aðlaganir og sjálfsumhyggju.
Í tímunum verður þátttakendum boðið upp á dýrmætt tækifæri til að jarðtengja sig, beina athyglinni inn á við og undirbúa sig fyrir daginn á rólegan og markvissan hátt. Hægt er að skrá sig í jógatímana með því að smella á hnappinn hér að neðan.
________________________________________________________________________________________________________
The B Team kynnir nýja sýn á forystu í atvinnulífi á Velsældarþinginu
Velsældarþingið býður The B Team velkomið til samstarfs í fyrsta sinn á þessu ári. The B Team er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem vinnur að því að endurmóta hlutverk forystu í atvinnulífi samtímans. Starfsemi samtakanna byggir á þeirri sýn að fyrirtæki eigi að þjóna bæði fólki og jörðinni samhliða arðsemi og stuðla þannig að ábyrgari forystu og markvissari aðgerðum fyrirtækja í málum á borð við loftslagsmál, ójöfnuð, stjórnarhætti og ábyrgð.
„B“ í The B Team vísar til „Plan B“ í rekstri fyrirtækja. Það endurspeglar þá sýn að hefðbundið líkan, þar sem hagnaður einn ræður för, sé ekki lengur nægjanlegt. Í stað þess leggja samtökin til nýja nálgun þar sem félagslegt, umhverfislegt og efnahagslegt virði er skapað samhliða, með það að markmiði að stuðla að réttlátari og sjálfbærari framtíð.
Á Velsældarþinginu í Hörpu mun stjórnarformaðurThe B Team, Jesper Brodin, meðal fyrirlesara. Hann mun taka þátt í svokölluðu "arinspjalli" (e. Fireside Chat) með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Þátttaka hans mun varpa ljósi á hvernig atvinnulífið getur lagt sitt af mörkum til velsældarhagkerfis og stuðlað að raunverulegum breytingum.
Auk þess tekur Leah Seligmann, framkvæmdastjóri The B Team, þátt í dagskrárlið um nýja mælikvarða fyrir fólk, jörð, stefnumótun og fjármál – umfram verga landsframleiðslu.
________________________________________________________________________________________________________
Skráning er opin!
Undirbúningur Velsældarþingsins er í fullum gangi og við hlökkum til að taka á móti þér í Hörpu í apríl. Ef þú átt enn eftir að skrá þig geturðu gert það með því að smella á hnappinn hér að neðan.
________________________________________________________________________________________________________
Fylgstu með
Fyrir nýjustu upplýsingar um dagskrá, staðfesta fyrirlesara, upplýsingar um viðburðarstað og hagnýt atriði, þar á meðal ferðalög til Íslands, er bent á opinbera vefsíðu Velsældarþingsins. Nýju efni verður bætt við eftir því sem nær dregur apríl og því er ráðlagt að líta reglulega inn á vefinn.
Heimasíða Velsældarþingsins
Ef þú hefur spurningar eða þarft frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Elínu Hirst: elin.hirst@landlaeknir.is
________________________________________________________________________________________________________


_edited.png)