top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Efling forystu á sviði velsældarhagkerfis – WEGo styður við Velsældarþingið 2025

  • Writer: Elín Hirst
    Elín Hirst
  • Feb 26, 2025
  • 1 min read
WEGo er einn af meðskipuleggjendum Velsældarþingsins 2025
WEGo er einn af meðskipuleggjendum Velsældarþingsins 2025

Við kynnum Gary Gillespie í ráðgjafanefnd Velsældarþingsins

Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar
Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar

Það er okkur sönn ánægja að bjóða Gary Gillespie, aðalhagfræðing skosku ríkisstjórnarinnar, velkominn í ráðgjafanefnd Velsældarþingsins. Þriðja Velsældarþingið fer fram í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025.


Gary er einnig í sérfræðihópi um velsældarhagkerfi þar sem hann veitir ráðgjöf og stefnumótandi ábendingar til ráðherra í Skotlandi og styður þannig við aðgerðir til að innleiða velsældarhagkerfi þar í landi.


Um WEGo – samstarf ríkja um velsældarhagkerfi

Ísland er stofnaðili að WEGo, samstarfi ríkis- og svæðisstjórna sem hafa skuldbundið sig til að þróa og innleiða velsældarhagkerfi. Frá stofnun þess árið 2018 hefur samstarfið stækkað og nær nú yfir Skotland, Ísland, Nýja-Sjáland, Wales, Finnland og Kanada . Markmið samstarfsins er að miðla þekkingu og stefnumiðuðum starfsháttum sem setja velsæld í forgang fram yfir hefðbundinn hagvöxt.


Hvað er velsældarhagkerfi?

Velsældarhagkerfi er frábrugðið hinum hefðbundnu efnahagslíkönum sem leggja megináherslu á hagvöxt, eins og verga landsframleiðslu (e. Gross Domestic Product – GDP). Í staðinn tekur velsældarhagkerfi tillit til ýmissa þátta, líkt og  félagslegra og umhverfislegra að auki hinna efnahagslegu til að skilgreina velsæld og lífsgæði.

 

Í velsældarhagkerfi setja stjórnvöld skýr markmið um velferð almennings og lífsgæði og móta stefnu og ákvarðanatöku út frá þeim. Efnahagslegir mælikvarðar eru þá studdir með víðtækari velsældarvísum, sem tryggja að fjármálastefna styðji raunverulega við langtíma velsæld almennings. Einnig eru þessir mælikvarðar nýttir í fjárlagagerð og til að meta langtímaáhrif stefnumótandi ákvarðana.

 

Með því að setja velsæld í kjarna efnahagsstefnu leitast velsældarhagkerfi við að skapa þrautseig, réttlát og sjálfbær samfélög.

 

📅 Vertu með í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025 og taktu þátt í þessu mikilvæga samtali!

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page