top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Að efla tengsl og draga úr einmanaleika – fyrir velsæld einstaklingins, samfélagsins og þjóðfélagsins í heild sinni

  • Writer: Lísbet Sigurðardóttir
    Lísbet Sigurðardóttir
  • Apr 23, 2025
  • 2 min read

Dagskrárliður í samstarfi við OECD á Velsældarþinginu 2025


Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, er einn af meðskipuleggjendum Velsældarþings 2025 og skipuleggur dagskrárlið á þinginu sem ber heitið „Að efla tengsl og draga úr einmanaleika – fyrir velsæld einstaklingsins, samfélagsins og þjóðfélagsins í heild sinni.“


OECD (Efnahags- og framfarastofnunin) er vettvangur og þekkingarmiðstöð fyrir gögn, greiningar og bestu starfsvenjur í opinberri stefnumótun.
OECD (Efnahags- og framfarastofnunin) er vettvangur og þekkingarmiðstöð fyrir gögn, greiningar og bestu starfsvenjur í opinberri stefnumótun.

Þar verður fjallað um hvernig tengsl á persónulegum, samfélagslegum og kerfisbundnum grunni eru lykilforsenda velsældar fólks og þess að samfélög geti þrifist og blómstrað.


Félagsleg tengsl eru meðal mikilvægustu áhrifaþátta velsældar. Þau hafa áhrif á hamingju og lífsánægju, andlega og líkamlega heilsu, sem og fjölmarga aðra þættir.  Því skipta félagsleg tengsl máli í margvíslegri stefnumótun sem miðar að bættri velsæld fólks, eflingu lýðheilsu, minni ójöfnuði og fátækt, auknu samfélagslegu öryggi, þróun stafrænna umbreytinga og dýpri skilningi á þeim þáttum sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku og samheldni í samfélaginu.


Romina Boarini, framkvæmdastjóri WISE-miðstöðvar OECD (Centre on Well-being, Inclusion, Sustainability and Equal Opportunity – eða Miðstöð velsældar, samfélagslegrar þátttöku, sjálfbærni og jafnra tækifæra hjá Efnhags- og framfarastofnuninni), stýrir þessum dagskrárlið. Romina hefur áratugareynslu í ráðgjöf til stjórnvalda um hvernig innleiða megi þessi gildi í opinbera stefnumótun. Undir hennar forystu hefur umræðan færst á alþjóðlegan vettvang um að félagsleg tengsl og tilfinning um að tilheyra samfélaginu séu lykilmælikvarðar velsældar.


Romania Boarini, framkvæmdastjóri WISE hjá OECD
Romania Boarini, framkvæmdastjóri WISE hjá OECD

Undir þessum dagskrárlið koma saman reynslumiklir sérfræðingar sem deila sjónarmiðum sínum og reynslu af þessu mikilvæga málefni, með það að markmiði að dýpka skilning og styðja við samhæfðar aðgerðir til að efla félagsleg tengsl og draga úr einmanaleika, bæði á landsvísu og á svæðisbundnum grunni.



Í pallborðinu verða eftirfarandi framsögumenn:

  • Katarina Ivanković Knežević, framkvæmdastjóri félagslegra réttinda og  samfélagslegrar þátttöku innan sviðs atvinnu, félagsmála og samfélagslegrar þátttöku hjá framkvæmdastjórn ESB

  • Gabriela Ramos, frambjóðandi til stöðu aðalframkvæmdastjóra UNESCO

  • Ilona Kickbusch, stofnandi Global Health Centre, Graduate Institute, Geneva

  • Lucia Rodriguez-Borlado, lýðheilsufræðingur í starfsþjálfun og meðlimur í ungmennaráði JA PreventNCD


Við hlökkum til innihaldsríkrar umræðu um hvernig efling félagslegra tengsla getur hjálpað til við að móta betri framtíð fyrir alla.


 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page