Velsæld sem tæki til að takast á við popúlisma
- Elín Hirst

- Mar 31, 2025
- 1 min read

Richard Layard, hinn þekkt hagfræðingur við London School of Economics og einn af aðalfyrirlesurum Velsældarþingsins í Reykjavík árið 2024, telur að velsæld og þar með lífshamingja fólks hafi aldrei verið mikilvægari. Hann segir: „Eins og alþjóðlega hamingjuskýrslan (World Happiness Report) sýnir í ár, er óhamingja meginorsök popúlisma, sem er ein helst ógn samtímans.“ Samkvæmt Layard hefur lengi verið vitað að það hvort ríkisstjórnir ná endurkjöri veltur mun frekar á lífsánægju fólksins en ástandi hagkerfisins.
Í grein sem birtist í The Guardian 22. mars 2024 kemur fram að Bretland hafi fallið úr því að vera 20. hamingjusamasta þjóð í heimi í það 23. samkvæmt hamingjuvísitölu þessa árs sem gefin var út í tengslum við alþjóðlega hamingjudag Sameinuðu þjóðanna 20. mars. „Í Bretlandi er verið að endurskoða opinber útgjöld í því augnarmiði að auka velsæld og það vekur góðar vonir,“ segir Layard. Finnland, Danmörk, Ísland og Svíþjóð, raða sér í fjögur efstu sætin, og halda sömu röð og árið á undan. Bandaríkin, eru í 24. sæti, sem er lægsta sætið sem sú þjóð hefur hafnað í hingað til í skýrslunni frá 2025.

Hópur franskra fræðimanna skrifa einn áhugaverðasta kaflann í skýrslunni. Þar sýna þeir fram á hvernig hægt er að útskýra uppgang popúlisma út frá minnkandi velsæld fremur en ástandi efnahagsmála.


_edited.png)