Vel heppnað vefmálþing „Velsældarhagkerfi - Leið að sjálfbærri velsæld fyrir fólk og jörðu“
- Margrét Jóhannsdóttir

- Dec 4, 2024
- 3 min read

Þann 28. nóvember 2024 var haldið vefmálþing í beinu streymi: „Velsældarhagkerfi – Leið að sjálfbærri velsæld fyrir fólk og jörðu“ sem er hluti af evrópska samstarfsverkefninu JA PreventNCD þar sem markmiðið er að draga úr byrði ósmitbærra sjúkdóma með því að vinna að rótum vandans: ójöfnuði í heilbrigðismálum, umhverfisáhrifum og félagslegum áhrifaþáttum heilbrigðis. Vinnupakkar um "Miðlun og Samskipti (Dissemination and Communication)" og "Heilsu í allar stefnur (Health in All Policies)" innan JA PreventNCD verkefnisins skipulögðu viðburðinn, í samstarfi við alþjóðlegt bandalag um velsældarhagkerfi (Wellbeing Economy Alliance - WEAll) og samstarf ríkja um velsældarhagkerfi (Wellbeing Economy Governments - WEGo). Um 300 manns horfðu á streymið en Michael Weatherhead, meðstofnandi WEAll stýrði viðburðinum. Á vefmálþinginu var meðal annars rætt um mikilvægi þess að efla efnahagskerfi þannig að þau setji heilsu og velsæld fólks og jarðar í forgrunn við alla stefnumótun.
Endurhönnun efnahagskerfa með heilsu og velsæld að leiðarljósi
Amanda Janoo, sérfræðingur hagfræði- og stefnumótunarmála hjá WEAll, lagði áherslu á brýn vandamál sem tengjast ójöfnuði og dvínandi geðheilsu, t.d. meðal ungs fólks. Hún vitnaði í könnun sem gerð var í G20 ríkjunum og benti á að 68% þátttakenda teldu að hagkerfi ættu að forgangsraða heilsu og velsæld einstaklinga og umhverfisins framyfir auð og hagnað.
Janoo kynnti velsældarhagkerfis-framtíðarsýn WEAll, sem byggir meðal annars á því að: allir hafi næg úrræði til að lifa með reisn og tilgangi; virða, vernda og endurheimta náttúrulegt umhverfi; tryggja sanngjarna dreifingu auðs, fjármagns, valds og tíma; byggja upp þýðingarmikil sambönd og tengsl; og tryggja að allir séu virkir í samfélaginu.
Nýjar áherslur innan hagkerfisins
Dr. Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar, lagði áherslu á nýja sýn innan hagkerfisins sem tekur tillit til félagslegra og umhverfislegra þátta auk hinna efnahagslegu. Hann benti á að þessi nálgun væri ekki ný af nálinni og mætti rekja hana nokkrar aldir aftur í tímann. Þar vísar hann til verka hins fræga hagfræðings Adams Smith um að árangur stjórnvalda eigi að vera metinn í beinu hlutfalli við það hversu vel þau stuðla að hamingju og velsæld borgaranna. Sem stofnaðili að WEGo hefur Skotland tileinkað sér þessa nálgun og metur árangur út frá félagslegum, umhverfislegum og efnahagslegum þáttum í gegnum samþætta velsældarvísa (Scotland´s National Performance Framework). Dr. Gillespie undirstrikaði þörfina fyrir kerfisbundna nálgun og benti á að engin ein ríkisstofnun geti á áhrifaríkan hátt tekist á við margþættar áskoranir nútímans. Samstarf þvert á þjóðfélagsgeira væri nauðsynlegt. WEGo samstarfið stuðlaði að öruggu umhverfi fyrir lönd til að deila stefnu, verkfærum og aðferðafræði til að efla velsældarhagkerfið.
Ötul vinna við velsældarhagkerfið í JA PreventNCD verkefninu
Dr. Eloi Laurent, yfirhagfræðingur hjá Sciences Po, og Dr. Aurore Fransolet, nýdoktor hjá Sciences Po, kynntu vinnu sína innan JA PreventNCD verkefnisins þar sem einn verkþáttur snýr að velsældarhagkerfinu. Vinna þeirra snýr að þróun stafrænnar verkfærakistu fyrir velsældarhagkerfi sem ætluð er til notkunar innan Evrópu (European Wellbeing Economy Toolbox). Á vefmálþinginu kynntu þau fyrstu drög að verkefni sínu, sem miðar að því að umbreyta hugmyndafræði velsældarhagkerfisins í hagnýt verkfæri sem getur nýst evrópskum stefnumótendum.
Heilsa innan velsældarhagkerfisins
Dr. Dóra Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, lagði áherslu á mikilvægi velsældarhagkerfis við það að skapa heilbrigðari og réttlátari samfélög. Hún lagði áherslu á að heilbrigðiskerfið eitt og sér stýri ekki heilsu okkar heldur væri heilsa samofin öllum sviðum samfélagsins og mótist af því umhverfi þar sem einstaklingar búa, elska, vinna og leika. Ákvarðanir sem teknar eru í ýmsum geirum – innan stjórnvalda, á vinnustöðum og úti í samfélögum - hafa djúpstæð áhrif á áhrifaþætti heilsu og undirstrika nauðsyn samstarfs þvert á geira. Í velsældarhagkerfi eru heilsa og velsæld sett í öndvegi sem sameiginlegt forgangsverkefni þvert á geira, sem stuðlar að bættu samstarfi og brýtur niður múra. Með því að forgangsraða velsæld yfir hina hefðbundndu mælikvarða, líkt og GDP-vöxt, er hægt að takast á við brýnar lýðheilsuáskoranir, þar á meðal ósmitbæra sjúkdóma og stuðla jafnframt að heilbrigðari jörðu fyrir komandi kynslóðir.
Umbreyting efnahagskerfisins
Þetta vefmálþing leiddi saman hagsmunaaðila frá Evrópusambandinu, WEGo, og WEAll, öflugar hreyfingar, einstaklingar og stofnanir, sem vinna að því að umbreyta efnahagskerfinu með það að leiðarljósi að auka velsæld. Með því að setja velsæld í forgrunn má ryðja brautina fyrir framtíð sem leggur áherslu á sjálfbærni, heilsu og hamingju bæði fyrir fólk og jörðu.
Fyrir þá sem ekki gátu fylgst með viðburðinum eða vilja horfa á málþingið aftur, þá er upptakan aðgengileg í gegnum eftirfarandi hlekk: https://www.youtube.com/watch?v=NdJCr4uNq64.


_edited.png)