Frá hugsjón yfir í aðgerðir: Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir á Velsældarþinginu 2025
- Lísbet Sigurðardóttir

- May 28, 2025
- 2 min read
Í heimi hraðra breytinga, verður forysta sem byggir á samkennd, hugrekki og skýrri sýn æ mikilvægari. Á Velsældarþinginu 2025 í Reykjavík talaði frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, einmitt fyrir þessum gildum.
Sem verndari þingsins markaði forsetinn tóninn fyrir viðburðinn. Í viðtali við Morgunblaðið ræddi hún um skyldurækni sína og framtíðarsýn fyrir Ísland. Hún lýsti því hve mikill heiður það væri að gegna hlutverki verndara þingsins, sérstaklega á þessum krefjandi tímum. Í stað þess að forðast áskoranir mætir hún þeim sem tækifærum til vaxtar og styrks. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að styðja við andlega heilsu ungs fólks og deildi vonum sínum fyrir framtíð þjóðarinnar. Hún velti einnig upp hugmyndinni um að halda þjóðfund á Íslandi á næsta ári, þar sem almenningur fengi tækifæri til að eiga samtal um langtímastefnu landsins og móta næstu fimmtíu árin.

„Þetta er einmitt það sem Velsældarþingið snýst um. Það sameinar stjórnvöld, sérfræðinga, fólk úr atvinnulífinu, þriðja geiranum og almenning sem hefur áhuga á heilsu og vellíðan í stóra samhenginu og veltir því fyrir sér hvort að efnahagskerfið sem við búum í, og hefur fært okkur velmegun, sé enn að stuðla að raunverulegri velsæld? Margt sýnir okkur að svo sé ekki – andleg heilsa fer versnandi, einmanaleiki eykst, og bæði ungu og eldra fólki líður ekki nógu vel.“
Lestu viðtalið í heild sinni í Morgunblaðinu (www.mbl.is): „Við getum verið ljós fyrir aðrar þjóðir.“
Einlæg opnun
Á opnunarviðburði síðar dags Velsældarþingsins átti Halla Tómasdóttir forseti áhrifaríkt samtal við Sandrine Dixson-Declève undir yfirskriftinni „Innri viska í stjórnun og forystu: Að bregðast við með hugrekki og samkennd.“ Opnunarviðburðurinn var í samstarfi við Spirit of Humanity Forum og var afar áhrifamikill. Forsetinn talaði á persónulegu nótunum, þar sem einlægni, tengsl og sameiginleg mannleg gildi voru í forgrunni.

Andrúmsloftið varð enn tilfinningaþrungnara í kjölfar einlægra orða Sister Jayanti, leiðtoga Brahma Kumaris, sem hreyfðu við þátttakendum þingsins. Þetta augnablik minnti okkur á að innri vellíðan er hornsteinn samfélagslegra umbreytinga.
Fyrstu Velsældarverðlaunin veitt
Í lok opnunarviðburðarins voru merkileg tímamót þar sem afhending fyrstu Velsældarverðlaunanna fór fram. Samstarf ríkja um velældarhagkerfi, Wellbeing Economy Governments (WEGo), hlutu verðlaunin í þetta sinn. Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar, tók við verðlaununum fyrir hönd þessa samstarfs. Þetta augnablik heiðraði brautryðjendastarf WEGo sem hafa það meginmarkmið að setja velsæld í forgrunn efnahagsstefnumótunar og sýndi hvernig sameiginleg þekking, djörf stefnumótun og samvinna milli ríkisstjórna getur haft víðtæk áhrif.

WEGo er samstarfsvettvangur nokkurra ríkja þar sem markmiðið er að stuðla að samvinnu stjórnvalda, sem vilja dýpka skilning á hugtakinu velsæld og innleiða í stefnumótun. Frá því að samstarfið hófst árið 2018 hefur það vaxið og nær nú til ríkisstjórna Skotlands, Íslands, Nýja-Sjálands, Wales, Finnlands og Kanada.
Hvetjandi afl breytinga
Hlutverk Höllu Tómasdóttur forseta Íslands á Velsældarþinginu 2025 var ekki aðeins táknrænt, heldur einnig hvetjandi afl til breytinga. Undir hennar forystu má sjá lifandi dæmi um það sem velsældarhagkerfi stendur fyrir: heimur þar sem fólk og jörð skipta meira máli en gróði, og þar sem hugrekki fer hönd í hönd með samkennd.


_edited.png)