top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Forseti Íslands tekur að sér hlutverk verndara árlegs Velsældarþings

  • Writer: Margrét Jóhannsdóttir
    Margrét Jóhannsdóttir
  • Jan 6, 2025
  • 2 min read
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Ljósmynd: Aldís Pálsdóttir
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Ljósmynd: Aldís Pálsdóttir

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, hefur tekið að sér hlutverk verndara árlegs Velsældarþings, sem haldið verður í Hörpu í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025. Þátttaka forsetans undirstrikar mikilvægi þess að koma á fót velsældarhagkerfi. Þingið hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir að varpa ljósi á frumkvöðlastarf Íslands á þessu sviði. Síðan 2018 hafa íslensk stjórnvöld tekið virkan þátt í samstarfi ríkja um velsældarhagkerfi (e. Wellbeing Economy Governments, WEGo), ásamt Finnlandi, Kanada, Skotlandi, Nýja-Sjálandi og Wales.


Embætti landlæknis skipuleggur Velsældarþingið í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda aðila, þar á meðal forsætisráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, Reykjavíkurborg, WEGo, OECD, WHO-Europe, UNESCO, alþjóðlegt bandalag um velsældarhagkerfi (Wellbeing Economy Alliance, WEAll), Rómarklúbbinn (e. Club of Rome), Earth for All, Samband íslenskra sveitarfélaga og Festu – miðstöð um sjálfbærni. Þingið er hluti af Evrópuverkefninu JA PreventNCD sem er styrkt af Evrópusambandinu.


Dr. Dóra Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis og brautryðjandi á sviði velsældar, mun stýra þinginu. Elín Hirst, fyrrverandi alþingismaður og fréttastjóri, gegnir hlutverki verkefnastjóra þingsins. Markmið Velsældarþingsins er að sameina stjórnmálafólk, fræðimenn, fulltrúa atvinnulífs, sveitarfélaga og stofnana til samstarfs um þróun og innleiðingu velsældarhagkerfa, auk þess að dýpka skilning á grunngildum þeirra.


Velsældarhagkerfi líta til fjölbreyttra mælikvarða til að meta lífsgæði og lífskjör fram yfir hefðbundnar efnahagslegar mælingar. Þessir mælikvarðar ná meðal annars til húsnæðisöryggis, líkamlegrar og andlegrar heilsu, umhverfislegrar sjálfbærni, lífsánægju, lýðræðislegrar þátttöku, öryggis í nærumhverfi og jafnvægis milli vinnu og einkalífs.


Auk þess hefur nýtt meistaranám í velsældarfræðum hlotið styrk að fjárhæð 420.000 evrur úr verkefninu Samstarf háskóla á Íslandi. Námið er samstarfsverkefni Háskólans í Surrey, Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og embættis landlæknis. Úthlutun styrksins var tilkynnt af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrrum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.


Frekari upplýsingar veitir Elín Hirst: Elin.hirst@landlaeknir.is

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page