EuroHealthNet einn af meðskipuleggjendum Velsældarþings 2025
- Lísbet Sigurðardóttir

- Apr 7, 2025
- 2 min read
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að EuroHealthNet verður einn af meðskipuleggjendum Velsældarþingsins 2025, sem haldið verður í Reykjavík dagana 8. og 9. maí nk.
Í yfir tuttugu ár hefur EuroHealthNet gegnt lykilhlutverki í að efla heilsu, félagslegan jöfnuð og velsæld víðs vegar um Evrópu. Með aðsetur í Brussel sameinar þetta samstarfsnet yfir 80 stofnanir, þar á meðal opinberar lýðheilsustofnanir á lands- og svæðisvísu, stjórnvöld og rannsóknaraðila, sem vinna saman að því að draga úr ójöfnuði í heilsu og takast á við félagslega, umhverfislega og markaðstengda áhrifaþætti heilsu.
Caroline Costongs, sem hefur verið framkvæmdastjóri EuroHealthNet frá árinu 2003, hefur leitt stofnunina áfram sem áhrifaríkan málsvara lýðheilsu í Evrópu. Undir hennar stjórn starfar þverfaglegt teymi að því að hafa áhrif á stefnumótun innan Evrópusambandsins, hvetja til nýsköpunar í rannsóknum og efla getu til kerfisbundinna breytinga. EuroHealthNet hefur gert viljayfirlýsingu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina í Evrópu (WHO Europe) og tekur virkan þátt í stefnumótunarvettvangi Evrópusambandsins (e. EU advocacy platforms), þar á meðal hagsmunahópi Evrópuþingsins (e. European Parliament Interest Group) sem beinir sjónum sínum að ójöfnuði í heilsu, áhættuþáttum og forvörnum.

Aðkoma EuroHealthNet sem meðskipuleggjandi undirstrikar markmið Velsældarþingsins um að tengja heilsu og velsæld við umbreytingu efnahagskerfa. Sérfræðiþekking þeirra á heilsueflingu, forvörnum og stefnumótun sem byggir á jöfnuði er lykilatriði í alþjóðlegri þróun í átt að velsældarhagkerfi, hagkerfi þar sem velsæld og heilsa fólks og jarðar eru í forgrunni.

Við bjóðum Caroline Costongs og teymi EuroHealthNet innilega velkomin til Reykjavíkur í maí 2025. Þátttaka þeirra tryggir að þingið haldi áfram að byggja á gagnreyndum aðferðum og nálgunum sem stuðla að jöfnuði og hvetja til endurhugsunar á því hvað hagkerfin okkar geta og eiga að skila í sameiningu.
Kynntu þér frekar starf EuroHealthNet á eurohealthnet.eu.


_edited.png)