Efling forystu á sviði velsældarhagkerfis – WEGo styður við Velsældarþingið 2025
- Elín Hirst

- Feb 26, 2025
- 1 min read

Við kynnum Gary Gillespie í ráðgjafanefnd Velsældarþingsins

Það er okkur sönn ánægja að bjóða Gary Gillespie, aðalhagfræðing skosku ríkisstjórnarinnar, velkominn í ráðgjafanefnd Velsældarþingsins. Þriðja Velsældarþingið fer fram í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025.
Gary er einnig í sérfræðihópi um velsældarhagkerfi þar sem hann veitir ráðgjöf og stefnumótandi ábendingar til ráðherra í Skotlandi og styður þannig við aðgerðir til að innleiða velsældarhagkerfi þar í landi.
Um WEGo – samstarf ríkja um velsældarhagkerfi
Ísland er stofnaðili að WEGo, samstarfi ríkis- og svæðisstjórna sem hafa skuldbundið sig til að þróa og innleiða velsældarhagkerfi. Frá stofnun þess árið 2018 hefur samstarfið stækkað og nær nú yfir Skotland, Ísland, Nýja-Sjáland, Wales, Finnland og Kanada . Markmið samstarfsins er að miðla þekkingu og stefnumiðuðum starfsháttum sem setja velsæld í forgang fram yfir hefðbundinn hagvöxt.
Hvað er velsældarhagkerfi?
Velsældarhagkerfi er frábrugðið hinum hefðbundnu efnahagslíkönum sem leggja megináherslu á hagvöxt, eins og verga landsframleiðslu (e. Gross Domestic Product – GDP). Í staðinn tekur velsældarhagkerfi tillit til ýmissa þátta, líkt og félagslegra og umhverfislegra að auki hinna efnahagslegu til að skilgreina velsæld og lífsgæði.
Í velsældarhagkerfi setja stjórnvöld skýr markmið um velferð almennings og lífsgæði og móta stefnu og ákvarðanatöku út frá þeim. Efnahagslegir mælikvarðar eru þá studdir með víðtækari velsældarvísum, sem tryggja að fjármálastefna styðji raunverulega við langtíma velsæld almennings. Einnig eru þessir mælikvarðar nýttir í fjárlagagerð og til að meta langtímaáhrif stefnumótandi ákvarðana.
Með því að setja velsæld í kjarna efnahagsstefnu leitast velsældarhagkerfi við að skapa þrautseig, réttlát og sjálfbær samfélög.
📅 Vertu með í Reykjavík dagana 8.–9. maí 2025 og taktu þátt í þessu mikilvæga samtali!


_edited.png)