Að efla tengsl og draga úr einmanaleika – fyrir velsæld einstaklingins, samfélagsins og þjóðfélagsins í heild sinni
- Lísbet Sigurðardóttir

- Apr 23, 2025
- 2 min read
Dagskrárliður í samstarfi við OECD á Velsældarþinginu 2025
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, er einn af meðskipuleggjendum Velsældarþings 2025 og skipuleggur dagskrárlið á þinginu sem ber heitið „Að efla tengsl og draga úr einmanaleika – fyrir velsæld einstaklingsins, samfélagsins og þjóðfélagsins í heild sinni.“

Þar verður fjallað um hvernig tengsl á persónulegum, samfélagslegum og kerfisbundnum grunni eru lykilforsenda velsældar fólks og þess að samfélög geti þrifist og blómstrað.
Félagsleg tengsl eru meðal mikilvægustu áhrifaþátta velsældar. Þau hafa áhrif á hamingju og lífsánægju, andlega og líkamlega heilsu, sem og fjölmarga aðra þættir. Því skipta félagsleg tengsl máli í margvíslegri stefnumótun sem miðar að bættri velsæld fólks, eflingu lýðheilsu, minni ójöfnuði og fátækt, auknu samfélagslegu öryggi, þróun stafrænna umbreytinga og dýpri skilningi á þeim þáttum sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku og samheldni í samfélaginu.
Romina Boarini, framkvæmdastjóri WISE-miðstöðvar OECD (Centre on Well-being, Inclusion, Sustainability and Equal Opportunity – eða Miðstöð velsældar, samfélagslegrar þátttöku, sjálfbærni og jafnra tækifæra hjá Efnhags- og framfarastofnuninni), stýrir þessum dagskrárlið. Romina hefur áratugareynslu í ráðgjöf til stjórnvalda um hvernig innleiða megi þessi gildi í opinbera stefnumótun. Undir hennar forystu hefur umræðan færst á alþjóðlegan vettvang um að félagsleg tengsl og tilfinning um að tilheyra samfélaginu séu lykilmælikvarðar velsældar.

Undir þessum dagskrárlið koma saman reynslumiklir sérfræðingar sem deila sjónarmiðum sínum og reynslu af þessu mikilvæga málefni, með það að markmiði að dýpka skilning og styðja við samhæfðar aðgerðir til að efla félagsleg tengsl og draga úr einmanaleika, bæði á landsvísu og á svæðisbundnum grunni.
Í pallborðinu verða eftirfarandi framsögumenn:
Katarina Ivanković Knežević, framkvæmdastjóri félagslegra réttinda og samfélagslegrar þátttöku innan sviðs atvinnu, félagsmála og samfélagslegrar þátttöku hjá framkvæmdastjórn ESB
Gabriela Ramos, frambjóðandi til stöðu aðalframkvæmdastjóra UNESCO
Ilona Kickbusch, stofnandi Global Health Centre, Graduate Institute, Geneva
Lucia Rodriguez-Borlado, lýðheilsufræðingur í starfsþjálfun og meðlimur í ungmennaráði JA PreventNCD
Við hlökkum til innihaldsríkrar umræðu um hvernig efling félagslegra tengsla getur hjálpað til við að móta betri framtíð fyrir alla.


_edited.png)