top of page
The Wellbeing Economy Forum logo
  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Ávinningur velsældarhagkerfis fyrir fólk og jörðu

  • Writer: Margrét Jóhannsdóttir
    Margrét Jóhannsdóttir
  • Oct 4, 2024
  • 2 min read


Í grunninn snýst velsældarhagkerfi um það að skapa samfélög þar sem hagkerfið þjónar öllum og stuðlar að sjálfbærri þróun, dregur úr ójöfnuði og bætir lífsgæði. En hvernig lítur velsældarhagkerfið út í framkvæmd og hvernig gagnast það bæði fólki og jörðu?


Stefnur með fólkið í fyrirrúmi


Velsældarhagkerfi lítur ekki einungis á fólk sem neytendur eða vinnuafl. Í staðinn eru stefnumótandi ákvarðanir hannaðar á þann hátt að þær efli velsæld einstaklinga og samfélaga. Stjórnvöld sem hafa tileinkað sér áherslur velsældarhagkerfisins tryggja meðal annars aðgang að gæða-heilbrigðisþjónustu, menntun, húsnæði og félagslegri þjónustu. Einnig er andleg heilsa og jafnvægi milli vinnu og einkalífs sett í forgang. Með því að byggja hagkerfi sem styður við félagslegan jöfnuð og þátttöku allra er hægt að draga úr ójöfnuði, lyfta fólki úr fátækt og tryggja að allir hafi jöfn tækifæri til að blómstra.


Sjálfbærni í umhverfismálum


Velsældarhagkerfið byggir á þeirri hugsun að heilsa jarðar og vælsæld fólks séu nátengd. Sjálbærni í umhverfismálum er hornsteinn þessa efnahagslíkans. Með því að móta stefnur sem stuðla að verndun náttúruauðlinda, minni kolefnislosun og aukinni nýtingu endurnýjanlegrar orku, leitast velsældarhagkerfið við að tryggja að komandi kynslóðir geti lifað í stöðugu og heilsusamlegu umhverfi.


Þrautseig samfélög


Velsældarhagkerfi leggur áherslu á að byggja upp þrautseig samfélög sem geta aðlagast áskorunum á borð við loftslagsbreytingar, efnahagsleg áföll og lýðheilsuvá. Þetta er gert með langtímahugsun og fjárfestingu í innviðum, nærhagkerfum og félagslegri þjónustu. Til dæmis gátu þau lönd sem tileinkuðu sér hugmyndafræði velsældarhagkerfisins brugðist skilvirkara við í COVID-19 heimsfaraldrinum, þar sem lögð var áhersla á lýðheilsu, stuðning við samfélög og efnahagslega endurreisn með jöfnuð að leiðarljósi.


Sjálfbær framtíð fyrir alla


Mikilvægasti ávinningurinn af velsældarhagkerfinu er líklega sá að það leggur grunn að sjálfbærri og réttlátari framtíð. Með því að tryggja að efnahagsstefna byggi á meginreglum velsældar -  heilsu, jöfnuði og sjálfbærni - getum við horfið frá skammtímahugsun og skapað heim þar sem bæði fólk og jörðin blómstra.


Velsældarhagkerfið býður upp á skýra og öfluga framtíðarsýn um heim sem þjónar öllum, ekki aðeins forréttindahópum. Með því að hafa velsæld og sjálfbærni í forgrunni efnahagslegra ákvarðana getum við skapað heim þar sem fólk býr við betri heilsu, samfélög eru sterkari og náttúran vernduð fyrir komandi kynslóðir.

 
 
The Wellbeing Economy Forum favicon

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

The JA PreventNCD Logo
Co-funded by the EU emblem

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

© 2024 Wellbeing Economy Forum

Join our
Mailing List

Follow us

The Wellbeing Economy Forum is an event that forms part of JA PreventNCD. JA PreventNCD is co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or European Health and Digital Executive Agency (HADEA). Neither the European Union nor HADEA can be held responsible for them.

Follow us

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
EN_Co-fundedbytheEU_RGB_POS.png
bottom of page